Tilfinningahjól
Kynnumst tilfinningum okkar betur.
- Finnið til litla bók til að skrifa í eða laus blöð og setjist niður fyrir kvöldmat í 7 daga.
- Skoðið tilfinningahjólið.
- Skrifið niður þær tilfinningar sem þið hafið upplifað þann daginn.
- Ræðið orðin, skýrið þau sem barnið hefur ekki heyrt áður og takið dæmi.
- Finnið orðin sem helst passa við upplifanir þann daginn.
- Ræðið hjólið og skoðið hvernig sum líðan getur verið svipuð en samt ólík.
Þetta er kjörin æfing fyrir foreldra að gera líka.