Sjálfstal er samtal sem einstaklingur á við sjálfan sig upphátt eða í hljóði í þeim tilgangi að hvetja sig áfram, hugga sig eða sýna sér væntumþykju eða jafnvel til að bæta ákveðna færni. Jákvætt og hjálplegt sjálfstal eykur trú á eigin getu og getur haft áhrif á líðan okkar og hegðun. Með æfingu getur jákvætt sjálfstal bætt líðan og styrkt sjálfsmynd okkar.

Það er gott að æfa setningarnar á hverjum degi í eina viku öðru hvoru. Það er einnig hægt að búa til sínar eigin setningar.
Sjálfstalið má nota hvenær sem er, bæði þegar okkur líður vel og illa.
Ef við æfum sjálfstalið þegar okkur líður vel þá verður auðveldara að nota það þegar okkur líður illa.

Foreldrar þurfa líka að skoða sitt hjálplega sjálfstal. Takið dæmi um hjálplegt sjálfstal sem þið notuðuð sem börn þegar þið hjálpið barninu ykkar að finna sitt.

Hugmyndir um hjálplegt sjálfstal:

  • Ég er klár.
  • Ég á það skilið að líða vel.
  • Hæfileikar mínir eru margir og ég er alltaf að uppgötva nýja.
  • Hugsanir eru bara hugsanir - stundum eru þær bara ekki réttar.
  • Ég reyni alltaf að gera mitt besta en skil að stundum gengur það og stundum ekki.

Dettur þér eitthvað fleira í hug?  Gerið ykkar eigin lista og breytið honum reglulega/eftir þörfum.

Hér fyrir neðan er skjal með góðum æfingum til að þjálfa þetta meira.