Hér er önnur æfing sem hjálpar unglingnum að takast á við aðstæður þegar honum líður illa og tilfinningarnar taka yfir. Þessi æfing er svipuð og þyrluæfingin og hjálpar við að sjá heildarmyndina og finna svo lausn.

Gott er að foreldrar fari fyrst yfir æfinguna og taki dæmi um hvernig þau hafa notað þessa aðferð, bæði í dag og þegar þau voru börn. Einnig er hægt að taka ímynduð dæmi til að hjálpa barninu að skilja þessa einföldu en öflugu leið.

Æfinguna er hægt að sækja á PDF sniði hér að neðan.