Það sem skiptir mig máli

 

Gildi eru orð sem lýsa því sem skiptir okkur máli í lífinu. Orð sem vísa til þess hvernig manneskjur við viljum vera og hvernig við viljum haga okkur í samskiptum við aðra og umhverfið okkar. Gildin vísa til þess sem hefur merkingu fyrir okkur og þess sem okkur þykir vænt um. Þau eru mismunandi fyrir alla og geta breyst hjá okkur frá einum tímapunkti til annars.

Hér að neðan er gott myndband um gildi - við mælum með að foreldrar horfi á það en það er stutt:

Gildi eru öðruvísi en markmið. Markmiðum er hægt að ná en gildi eru meira eins og áttaviti sem við getum fylgt, stefna sem við getum nýtt okkur t.d. til að setja okkur markmið eða taka ákvarðanir í ýmiskonar aðstæðum. Einnig er hægt að nota gildi til að bæta lífsgæðin. Við finnum stefnu í lífinu og okkur líður almennt betur þegar við lifum eftir gildunum okkar.  Annað mikilvægt við gildi er að þau hjálpa okkur að leysa vandamál - finna lausnir þegar lífið verður erfitt.  Við horfum þá til gildanna okkar, hægjum á og finnum lausn sem er í takt við það hvaða manneskja við viljum vera.

Gildi snúast um:

  • Hvernig viltu koma fram við sjálfan þig?
  • Hvernig viltu koma fram við aðra?
  • Fyrir hvað stendur þú og hvað skiptir þig mestu máli í lífinu?

Ef gildið samviskusemi er okkur t.d mikilvægt þá er það í samræmi við gildið að setja okkur það markmið að mæta alltaf á réttum tíma í skólann en sem ákvörðun í daglegu lífi er t.d. gott að minna sig á gildið þegar er gaman en við vitum að við þurfum að fara heim og klára heimavinnu.

Ef gildið er hugrekki þá getur verið gott markmið að skrá sig í leiklistarklúbbinn og góð ákvörðun að rétta upp hendi þegar við þurfum hjálp í tíma þó svo okkur finnist óþægilegt að aðrir sjái að við kunnum ekki eitthvað.

Stundum þegar okkur líður illa þá er það vegna þess að við höguðum okkur ekki í samræmi við þau gildi sem eru okkur mikilvæg, t.d ef við hreyfum okkur ekki þó við viljum vera hraust eða ef við aðstoðum ekki einhvern sem er í vanda af því við þorum ekki þó við viljum vera hjálpsöm.

Hér er annað gagnlegt myndband:

Verkefni:

Útskýrið hvað gildi eru og notið upplýsingarnar hér að ofan og þau sem eru í myndbandinu. Vinnið svo verkefnið sem hægt er að finna hér að neðan. Munið að gera verkefnið líka sjálf og taka dæmi út ykkar eigin lífi til að barnið skilji þetta betur.