Tilfinningar eru allskonar
Í þessari æfingu ætlum við að kynnast tilfinningum betur og læra jafnvel fleiri orð til að lýsa þeim. Horfið á myndbandið hér að neðan, skoðið tilfinningakortið sem birtist fyrir neðan það (hægt að prenta það út neðst) og skoðið svo umræðupunktana neðst. Nýtið þetta efni í gott samtal heima um tilfinningar. Þetta er svo hægt að ræða aftur og aftur. Til dæmis er hægt að prenta tilfinningakortið út og skoða það saman reglulega.
Horfið á myndbandið:
Myndband sótt af Allir gráta
- Sjá nánar í grein Tilfinningar okkar birtast ekki upp úr þurru
Hér eru nokkrar algengar tilfinningar:
Umræðupunktar heima við:
- Foreldri og barn eða fjölskyldan ræða saman um tilfinningar á listanum.
- Saman finna þau dæmi úr eigin lífi þar sem þau hafa upplifað tilfinningarnar á blaðinu.
- Ræðið hversu sterkar tilfinningarnar urðu í aðstæðunum, reynið að finna dæmi þar sem tilfinning var mjög sterk/yfirþyrmandi og önnur þar sem hún var væg.
- Ræðið hvernig þið brugðust við tilfinningunni og hvort það var hjálplegt eða ekki. Ef ekki, ræði hvernig þið vilduð hafa brugðist við, eða hvernig þið viljið gera það í framtíðinni.
Umræðupunktar í bekk:
- Kennari fer yfir tilfinningar á listanum og biður krakkana í bekknum að gefa dæmi um hvað gæti látið mann upplifa þessar tilfinningar
- Kennari biður krakkana um að rifja upp atvik þar sem þau upplifðu einhverja tilfinningu á listanum, eða bók, mynd eða þátt þar sem persóna upplifði þessar tilfinningar
- Á töfluna er gerður listi með dálk fyrir hverja tilfinningu á blaðinu. Fyrir neðan skráir kennari dæmi sem krakkarnir nefna um hverja tilfinningu. Dæmin mega vera persónuleg, uppúr bók eða bíómynd eða frá e-m sem þau þekkja.
- Farið saman yfir algenga hegðun við þessum tilfinningum. Ræðið hvaða hægt er að gera þegar við upplifum erfiðar tilfinningar sjá grein Að þola það sem er óþægilegt.