Væntingar samfélagsins
Vandinn við að þurfa alltaf að vera sæt/ur
Þetta verkefni er ætlað bæði foreldrum að nota heima fyrir og einnig fyrir kennara (eða aðra) til að nota sem hópverkefni. [1]
Í þessu verkefni skoðum við væntingarnar sem samfélagið gerir til okkar og þá sérstaklega útlitslega. Nefnilega það að þurfa alltaf að líta vel út. Gott er að byrja á því að ræða það almennt séð, ýta undir samtalið og spyrja opinna spurninga. Hinir fullorðnu geta tekið dæmi um hvernig þetta var þegar þeir voru yngri. Til að liðka fyrir samtalinu er gott að skoða dæmin hér að neðan og horfa svo á myndböndin sem koma þar á eftir.
Þessi æfing er betri fyrir efri bekki grunnstigs en hægt er að einfalda hana fyrir fyrstu tvo bekki stigsins.
Gott er fyrst að biðja barnið eða bekkinn um að segja hvað þeim finnst vera fullkomið útlit fyrir stelpu/strák og gera lista saman.
Dæmi um væntingar samfélagsins:
Útlitsstaðlar fyrir stelpur: Langir fótleggir Grönn Stór brjóst Engar bólur / slétt húð Grannt mitti Stór augu Stórar varir Flatur magi “Tónuð” Brún/tönuð Löng augnhár Grannir fætur Sítt hár Stundaglasavöxtur |
Útlitsstaðlar fyrir stráka: Vöðvamiklir/massaðir Breiður brjóstkassi Grannur Hávaxinn Breiður kjálki V-laga vöxtur Brjóstvöðvar/kassi Magavöðvar Stórir upphandleggir Breiðar axlir Engar bólur / slétt húð Grannt mitti Tónaður Lág fituprósenta |
Verkefni / Umræðupunktar:
Nú skrifið þið niður allt sem ykkur dettur í hug um þau áhrif sem væntinga frá samfélaginu geta haft, þar með talið þær væntingar sem birtast í t.d. samfélagsmiðlum og tónlistarmyndböndum. Ef þetta er unnið í bekk er hægt að skipta þeim í hópa og sameina svo svörin.
- Hvernig líður fólki sem heldur að það þurfi að vera eins og öðrum finnst að það eigi að vera?
- Líður þér stundum þannig?
- Hvernig líður fólki sem eyðir allri sinni orku og áherslum í að breyta því hvernig það lítur út?
- Hvernig er að vilja líta út eins og allir vilja en ná því ekki?
- Hver eru áhrifin á líkamlega heilsu (orku, næringu o.fl.) þegar fólk er mikið að breyta mataræði sínu eða hreyfingu til að breyta útlitinu?
- Hvaðan haldið þið að þessar væntingar komi?
- Hvaða kemur pressan að þurfa líta út á ákveðinn hátt? Dæmi: Það sem einhver segir, hrós sem snýst bara um útlit eða að eiga vin sem talar mikið um útlit þeirra sem eru frægir, tónlistarmyndbönd o.s.frv.
- Hvað getur þú/þið gert til að hjálpa? Skrifaðu niður að minnsta kosti þrjú atriði sem þú og vinir þínir geta gert til að minnka pressuna sem allir upplifa varðandi útlitið.
- [1] Unnið að hluta úr “Happy Being Me” - Susan Paxton. Birt með leyfi.