Setja sig í spor annarra
Hvernig líður öðrum?
Hér er um að ræða enn annað kjarnaatriðið í allri vináttufærni.
Þegar við skiljum hvernig öðrum líður - og getum sett okkur í spor þeirra þá er auðveldara að velja samskipti sem henta í hvert sinn. Öllum félagslegum hópum gengur betur ef við tökum tillit til þeirra sem við ferðumst með í gegnum lífið. Ekki er ætlast til þess að fara samt í meðvirkni og setja ekki mörk en tillitssemi og skilningur þarf að vera til staðar til að öll mannleg samskipti gangi upp. Við erum svo ólík og mismunandi - sem er samt okkar aðalstyrkleiki.
Sum börn skilja þetta hraðar en önnur - hafa mikið innsæi að upplagi. Önnur þurfa meiri þjálfun og æfingar.
Þau börn sem fá þjálfun í þessu gengur oft betur að fóta sig í til dæmis ástarsamböndum framtíðarinnar og á vinnumarkaði.
Leiðir til þjálfunar:
Ein besta leiðin til að þjálfa þetta er að fara í stutt samtöl þegar eitthvað kemur upp á í daglegu lífi - þá erum við að æfa þau í að giska á hvernig öðrum líður. Engin nær því fullkomlega alltaf svo því sé haldið til haga - við misskiljum stundum aðra eða lesum rangt í fólk. Það er ómögulegt að koma í veg fyrir það í okkar mannlegu tilveru.
Hægt er að nota tilfinningakortið hér og hér til að aðstoða við samtalið. Ræðið það hvernig andlitið breytist eftir því hvaða tilfinningu við erum að upplifa. Samtal við foreldri er semsagt langbesta þjálfunarleiðin. Best er að setja þetta inn í samtal hér og þar þegar það passar - í smáskömmtum yfir lengri tíma.
Spurningar til að ræða í svona daglegum aðstæðum sem koma upp eru til dæmis:
- Hvernig líður þessu barni - þessum einstaklingi? Hvaða tilfinningar og hugsanir eru kannski að koma upp í huga þess?
- Hvernig myndi mér líða ef þetta kæmi fyrir mig?
- Hvað myndi hjálpa mér að líða betur í svona aðstæðum?
- Hvernig veistu hvað góður vinur er?
- Manstu hvenær þú varst góður vinur?
- Hvernig heldur þú að vini þínum hafi liðið þegar þú varst góður vinur?
Sögur og dæmi:
Hægt er að nota sérstakar félagsfærnisögur og vináttufærnisögur eða nota bækur sem þegar er verið að lesa fyrir barnið. Þá er hægt að ræða aðstæður og atburði sem hafa að gera með að setja sig í spor annarra og skilja líðan annarra. Við getum rætt hvernig viðkomandi líður - hvað er hann að hugsa og hvað get ég gert. Dæmi um aðstæður sem hægt er að ræða:
- Vinur dettur af hjóli og meiðir sig.
- Vinur skilur ekki eitthvað sem verið er að tala um í skólanum og aðrir stríða honum.
- Vini er strítt í í þróttum því hann gat ekki gert einhverja æfingu.
- Vinur er veikur heima og getur ekki komið í skólann og hitt vini.
- Einhver er nýr í skólanum.
- Þegar einhver er skilin út undan.
Kvikmyndir/teiknimyndir:
Teiknimyndir er önnur leið til að eiga þessi samtöl og æfa þá sérstaklega samkennd gagnvart öðrum. Hér að neðan eru nokkrar slikar en einnig er hægt að setja svona æfingu í hvaða teiknimynd eða kvikmynd sem er. Einnig er hægt að skoða snjallsíma appið okkar (Sterkari út í lífið) en þar er hægt að hlusta á æfingar sem þjálfa þetta.
Gott er að ræða við börn af hverju það skiptir máli að skilja tilfinningar annarra svo þau mögulega finni áhugann á því sjálf. Þegar við skiljum aðra þá hjálpum við þeim að líða betur. Svo eigum við auðvitað sjálf það skilið að aðrir reyni að skilja okkur.
Passaðu að hrósa barninu þegar það sýnir skilning á aðstæðum annarra og/eða tilfinningalíðan annarra.
Öll hegðun sem lýtur að skilningi og samkennd er smitandi. Þegar margir í hópnum leiða leiðina með þessum hætti þá verður allur hópurinn á endanum meira stilltur í þessa átt. Þarna getur líka skipt máli hvernig leiðtogarnir í hópnum haga sér. Ef leiðtogarnir eru jákvæðir að þessu leyti þá hefur það áhrif á allan hópinn - og öllum líður betur sem þýðir að við eigum auðveldara með að fá að vera við sjálf - mannleg og ófullkomin.
Þegar við skiljum aðra og getum sett okkur í spor þeirra þá eykst góðvild. Góðvild er orð sem gott er að ræða sérstaklega. Góðvild er sem sagt afurðin sem út úr svona þjálfun kemur og getur hún breytt miklu í lífi okkar allra. Hún vinnur gegn dómhörku og hvatvísi. Það er hægt að sýna góðvild á sama tíma og maður stendur með sjálfum sér.
Skilningur og samkennd gagnvart öðrum = Góðvild
Hér eru stuttar teiknimyndir sem eru á ensku en flestar án tals - þær geta verið gagnlegar til að byrja samtöl um vináttufærni og að setja sig í spor annarra.
Sjálfselski Krókódíllinn
Góðvild er ofurkrafturinn minn
Þegar enginn er að horfa - Krafturinn í góðvildinni
Tilfinningar, sjálfstraust og góðvild
Regnhlífin - verðlaunamynd um góðvild og von
Litaðu heiminn með góðvild
Brúin
Góðvild er smitandi
Sönn vinátta