Markmið þessa verkefnis er að auka aðgengi foreldra að efni sem hægt er að nota heima við og styrkir sjálfsmynd. Þessu efni er ætlað að auðvelda samtöl um ýmislegt sem snertir styrkingu sjálfsmyndar barna og unglinga. Einnig er möguleiki fyrir kennara og annað fagfólk sem starfar með þessum hóp að nýta sér efnið. Allt efni hvílir á traustum gagnreyndum grunni.

Efni síðunnar kemur ekki í stað meðhöndlunar frá fagaðila ef þess þarf.

Sálfræðistofan Höfðabakka er framkvæmdaraðili verkefnisins og verkefnastjórar eru Aldís Eva Friðriksdóttir, Unnur Margrét Unnarsdóttir og Þórdís Rúnarsdóttir, sálfræðingar.

Vinna heilbrigðisstarfsfólks er sjálfboðastarf en greitt er fyrir vinnu annarra - til dæmis vinnu forritara, grafískra hönnuða og upptökustjóra.

Ýmsir aðilar hafa styrkt verkefnið á undanförnum árum.  Styrkjendur eru: Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Embætti Landlæknis, Mennta- og barnamálaráðuneyti, Landsbankinn, Landsvirkjun og VR.`

Styrkjendur okkar:

Embætti landlæknis

Reykjavíkurborg

Kópavogsbær

Garðabær

VR stéttarfélag

Samstarfsaðilar eru:

Framkvæmdahóp skipa:

Aldís Eva Friðriksdóttir - Sálfræðingur

Anna Dóra Frostadóttir - Sálfræðingur

Bryndís Jóna Jónsdóttir - Náms- og starfsráðgjafi

Ívar Björnsson - Grafískur hönnuður

Linda Loe - Grafískur Hönnuður

Unnur Margrét Unnarsdóttir - Sálfræðingur

Þórdís Rúnarsdóttir - Sálfræðingur

Rúnar Helgi Andrason - Sálfræðingur