Málþing 2026
Þegar skóladagurinn verður barátta.
Líðan barna með taugafjölbreytileika í skólakerfinu -- Málþing 26 september 2026
Á málþinginu sem haldið verður á Nordica mun athyglin beinast að börnum með taugafjölbreytileika — þar á meðal ADHD, einhverfu, lesblindu, Tourette og DLD — hóp sem talinn er vera 15-20% barna. Rannsóknir sýna að þessi börn eru í aukinni hættu á álagi og áföllum og þurfa öruggt og skilningsríkt umhverfi til að dafna.
Markmið málþingsins er að efla skilning og fara yfir hagnýtar leiðir sem styðja við þessi börn í því umhverfi sem þau lifa og hrærast mest í - á heimili sínu, í frístundastarfi --en síðast en ekki síst í grunn- og framhaldsskólum þar sem áreitin geta verið margvísleg.
Málþingið mun hefjast kl 13 og standa til kl 17 - laugardaginn 26 september. Fundarstjóri er Atli Már Steinarsson, fjölmiðlamaður.
Miðasala er hafin á Tix og er hægt að kaupa miða í sæti og streymi - linkur hér beint á miðasölu: https://tix.is/event/21579/thegar-skoladagurinn-verdur-baratta
Flutt verða fimm athyglisverð erindi um líðan barna og unglinga með taugafjölbreytileika:
Tilfinningavandi og taugakerfi barna með taugaþroskaraskanir.
Guðrún Ólafsdóttir, sálfræðingur.
Taugafjölbreytileiki, skólatengsl og tæknilausnir fyrir nám og starf .
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir - Stofnandi Harts og aðgengisérfræðingur.
Ósýnilega baráttan: Sértækir námserfiðleikar og málraskanir.
Guðrún Carstensdóttir, sálfræðingur.
Mikilvægi samkenndar fyrir börn/unglinga með taugaþroskaraskanir og foreldra þeirra.
Bryndís Einarsdóttir – Mjöll Jónsdóttir, sálfræðingar.
Að styðja í gegnum áskoranir - ACT fyrir börn, unglinga og foreldra.
Rúnar Helgi Andrason, sálfræðingur.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------
Hér að neðan má sjá einhverja þeirra fyrirlestra sem hafa verið fluttir áður á málþingum Sterkari út í lífið um lífsgæði barna og unglinga.