Um okkur
Markmið þessa verkefnis er að auka aðgengi foreldra að efni sem hægt er að nota heima við og styrkir sjálfsmynd. Þessu efni er ætlað að auðvelda samtöl um ýmislegt sem snertir styrkingu sjálfsmyndar barna og unglinga. Einnig er möguleiki fyrir kennara og annað fagfólk sem starfar með þessum hóp að nýta sér efnið. Allt efni hvílir á traustum gagnreyndum grunni.
Efni síðunnar kemur ekki í stað meðhöndlunar frá fagaðila ef þess þarf.
Sálfræðistofan Höfðabakka er framkvæmdaraðili verkefnisins og verkefnastjórar eru Aldís Eva Friðriksdóttir, Unnur Margrét Unnarsdóttir og Þórdís Rúnarsdóttir, sálfræðingar.
Vinna heilbrigðisstarfsfólks er sjálfboðastarf en greitt er fyrir vinnu annarra - til dæmis vinnu forritara, grafískra hönnuða og upptökustjóra.
Ýmsir aðilar hafa styrkt verkefnið á undanförnum árum. Styrkjendur eru: Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Embætti Landlæknis, Mennta- og barnamálaráðuneyti, Landsbankinn, Landsvirkjun og VR.`
Styrkjendur okkar:
Embætti landlæknis
Reykjavíkurborg
Kópavogsbær
Garðabær
VR stéttarfélag
Samstarfsaðilar eru:
Framkvæmdahóp skipa:
Aldís Eva Friðriksdóttir - Sálfræðingur
Anna Dóra Frostadóttir - Sálfræðingur
Bryndís Jóna Jónsdóttir - Náms- og starfsráðgjafi
Ívar Björnsson - Grafískur hönnuður
Linda Loe - Grafískur Hönnuður
Unnur Margrét Unnarsdóttir - Sálfræðingur
Þórdís Rúnarsdóttir - Sálfræðingur
Rúnar Helgi Andrason - Sálfræðingur